Flýtilyklar
Nýjustu fréttir
-
Sumarlestur - kynning á Amtsbókasafninu n.k. mánudag

Amtsbókasafnið og Minjasafnið auglýsa lestrarhvetjandi sumarnámskeið fyrir börn úr 3. og 4. bekk. Við lesum, lærum um bæinn okkar og sögu hans og höfum að sjálfsögðu gaman saman:-)
Haldinn verður kynningarfundur mánudaginn 14. maí, kl. 17:00 á Amtsbókasafninu.
Herdís - herdisf@akureyri.is og Sirrý - sirry@minjasafnid.is
Allir hjartanlega velkomnir!
-
Sumargleði á Minjasafninu – sumardaginn fyrsta kl. 14-16

Sumrinu verður fagnað á Minjasafninu á Akureyri með gleði í hjarta.
Börn frá 2-102 ára geta leikið við hvern sinn fingur, blásið burtu vetrinum með sápukúlum, leikið sér í búleik við Nonnahús eða tekið þátt í margvíslegum útileikjum. Svo ekki sé minnst á lummurnar. Jú og hestana sem gefa færi á stuttri en gefandi hestaferð.
Blásarar Tónlistarskólans hefja leik kl. 14 og blása inn sumrinu en ilmur af lummum og heitu kakói lokkar væntanlega einhverja inn til að skoða skemmtilegu nýju sýningar safnsins. Ekki snerta jörðina- leikir 10 ára barna sem er skemmtileg afþreying fyrir börn á öllum aldri og þar er skylda að leika sér! Þeir sem telja sig eldri geta líka leikið sér á ljósmyndasýningu Þorsteins Jósepssonar á myndum úr Eyjafirði. Þar er leitað eftir þekkingu gesta á myndefninu og komið þeim upplýsingum til safnsins.
Þar sem Akureyrarbær á 150 ára afmæli og Minjasafnið 50 ára afmæli verður boðið upp á afmælisföndur. Sannarlega eitt og annað fyrir fjölskyldur og börn á öllum aldri að skemmta sér við.
Í sumargjöf er ókeypis inn á safnið. Dagskráin hefst kl. 14 og stendur til 16.
Það er starfsfólk Minjasafnsins á Akureyri og Stoðvinafélag safnsins sem standa að sumargleði á sumardaginn fyrsta.
-
Ljósmyndir Þorsteins Jósepssonar
Sýning á ljósmyndum Þorsteins Jósepssonar, sem hann tók á ferðum sínum um Eyjafjörð, opna á skírdag kl. 14. Á sýningunni gefst gestum tækifæri til að aðstoða við greiningu á myndefninu. Ljósmyndir Þorsteins eru varðveittar af Þjóðminjasafni Íslands.
Heimsóknir
Samtals: 1498885
Opnunartími
Minjasafnið á Akureyri - Akureyri Museum
Lokað vegna sýningarundirbúnings til 2. júní
Minjasafnið á Akureyri - Akureyri Museum
Opið alla daga 10-17
frá 1.júní -15.september
Every day from 10-17
from June 1. - 15. September
Opið alla daga 10-17
frá 1.júní -1.september
Every day from 10-17
from June 1. - 1. September
Davíðshús - Sigurhæðir
David's house & House of Triumph
Opið virka daga 13-17
frá 1.júní -1.september
Weekdays from 13-17
from June 1. - 1. September
Utan opnunartíma - Different hours
Opið eftir samkomulagi.
Open by arrangement outside museum hours.
Skrifstofa safnsins er opin
alla virka daga frá kl. 8-16.
Sími: 462-4162 og 895-3171
Sími Laufáss 895-3172
Tekið á móti skólahópum alla virka daga.
Bókanir hjá sirry@minjasafnid.is


