Minjasafnið á Akureyri - Akureyri Museum

Minjasafnið á Akureyri, Akureyri Museum

Flýtilyklar

Nýjustu fréttir

  • Markaðsdagur í Laufási 2. ágúst


    Það ætti enginn að láta markaðsdaginn í Gamla bænum Laufási framhjá sér fara. Haldinn verður útimarkaður frá 14-17 með handverki, listmunum og matvöru úr héraði.

    Í Gamla prestshúsinu verða þjóðlegar veitingar til sölu sem renna eflaust enn ljúflegar niður við tóna frá Snorra Guðvarðarsyni. 

    Gamli bærinn og veitingasalan er opin daglega frá kl. 9-18.


  • Söguganga Minjasafnsins - um verslunarmannahelgina


    Sögugangan hefst við Sigurhæðir laugardaginn 31. júlí kl 14.  þaðan verður haldið í Innbæinn að Minjasafnskirkjunni, leið sem Matthías Jochumsson þjóðskáld gekk gjarnan sér til heilsubótar. Þaðan verður farið upp og norður Nonnnastíg, um Búðagil, Spítalaveg og Eyrarlandsveg aftur að Sigurhæðum.  Í lok göngunnar  verður boðið upp á kaffi, kakó og vöflur á Sigurhæðum. Þetta er létt og þægileg ganga og tilvalin fyrir alla fjölskylduna. Ekkert þátttökugjald. leiðsögumaður er Gísli Sigurgeirsson, Innbæingur og húsbóndi á Sigurhæðum.

  • Leiðsögn um ljósmyndasýninguna FJÁRSJOÐUR -


    Hefur þu séð eina fyrstu íslensku paparazzi myndina?  Hefur þú séð mynd af fyrstu konunni sem kaus á Íslandi ? Viltu kynnast ljósmyndurnum Tryggva Gunnarssyni, Önnu Schöth, Vigfúsi Sigurgeirssyni og  Tryggva Gunnarssyni ásamt fleirum ? Nú er tækifærið því sunnudaginn 25.júlí kl 14 mun  Hörður Geirsson, safnvörður Minjasafnins á Akureyri, leiða gesti í gegnum sýninguna  svara fyrirspurnum og segja sögur eins og honum einum er lagið.  


  • Góð stemning á sumarstarfsdegi í Laufási


    Hátt í 500 manns heimsótti Gamla bæinn Laufás á íslenska safnadaginn síðastliðinn sunnudag. Það myndaðsti skemmtileg stemning bæði meðal "íbúa", sem klæddust fatnaði eins og tíðkaðist á 19. öld, og gesta á staðnum.  Íbúarnir unnu flest þau störf sem vinna þurfti í slíku sveitasamfélagi og gestir fylgdust andaktugir með en inn á milli var slegið á létta strengi. Á túninu var stigin öflug og spennandi glíma bæði meðal barna og fullorðna. Takk fyrir komuna!

  • Fullt var út úr dyrum í söfnunum í Innbænum í gær


    Það voru ánægðir safnmenn sem lokuðu söfnunum í gær því mikill fjöldi gesta sótti þau heim á íslenska safnadeginum. Það var mikið fjör á opnun leikfangasýningar Guðbjargar Ringsted í Friðbjarnahúsi og rúmlega 400 manns sóttu Minjasafnið heim, svipaða sögu er að segja úr Nonnahúsi.  

FJÁRSJÓÐUR - ljósmyndasýning

Mynd augnabliksins

bibl32.jpg

Dagatal

« Ágúst 2010 »
SMÞMFFL
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031 

Opnunartími

Minjasafnið á Akureyri
er opið alla daga frá 1.júní - 15.sept kl 10-17 

Skrifstofa safnsins er opin virka daga frá kl. 8-16.

Gamli bærinn Laufás er opinn frá 30. maí daglega kl 9-18 til 12. september.

Nonnahús: opið alla daga frá 1. júní -15.sept. kl 10-17

 Minjasafnið á götukorti

Póstlistar


...

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf

Framsetning efnis

English