Flýtilyklar
Nýjustu fréttir
-
LUMMUKAFFI í Laufási síðustu opnunarhelgina

Í Gamla prestshúsinu næstu helgi (12. og 13. september) verður lummukaffi í gamla Prestshúsinu þar sem þetta er síðasta opnunarhelgi sumarsins.
OPið er í Gamla bænum, veitingasölunni og safnbúðinni í gamla Presthúsinu frá kl 9-18.
Verið hjartanlega velkomin
-
Vel heppnuð DRAUGASLÓÐ á föstudagskvöldið
Draugalegt var um að listast í Innbænum síðastliðið föstudagskvöld þar sem sögumenn fóru með draugasögur, kveðnar voru rímur við undirleik dimmra tóna vindlurks og verur af ýmsum gerðum fóru á stjá. það var margt um manninn á þessu kyngimagnaða kvöldi! Á safninu urðu gestir varir við draugalegar verur í mörgum skúmaskotum og sýningum þess og óvenjulegir gripir leyndust víða. Við þökkum öllum okkar góðu gestum fyrir komuna og sjálfboðaliðum og velunnurum safnsins fyrir þátttökuna.
-
Kyngimagnað kvöld í Innbænum!
Skerandi óp, dularfullur andardráttur, drungaleg tónlist, draugasögur og verur af öðrum heimi er meðal annars það sem gestir og gangandi munu heyra og sjá í Innbænum, elsta hluta Akureyrar, næstkomandi föstudagskvöld 27. ágúst kl 22:30-23:59. Þetta kyngimagnaða kvöld hefst á Minjasafninu sjálfu þar sem draugalegt verður um að litast frá kl 22:00 – 23:59. Gestir safnsins munu virða fyrir sér sýningar þess með öðrum hætti en áður og dulúð og draugalegheit munu ráða ríkjum.
-

-
Draugaslóð MInjasafnsins á föstudagskvöld
Skerandi skelfileg óp, drungaleg tónlist og verur af öðrum heimi er meðal annars það sem gestir og gangandi munu heyra og sjá í Innbænum, elsta hluta Akureyrar, næstkomandi föstudagskvöld 27. ágúst kl 22:30-23:59 í Draugaslóð Minjasafnsins á Akureyri. Draugasögur verða sagðar í Minjasafnsgarðinum, við Friðbjarnarhús, við Gamla spítalann og Laxdalshús.
Síðast en ekki síst verður draugalegt um að litast á Minjasafninu sjálfu frá kl 22:00 – 24:00!
Vissir þú

Opnunartími
Minjasafnið á Akureyri
er opið alla daga frá 1.júní - 15.sept kl 10-17
Skrifstofa safnsins er opin virka daga frá kl. 8-16.
Gamli bærinn Laufás er opinn frá 30. maí daglega kl 9-18 til 12. september.
Nonnahús: opið alla daga frá 1. júní -1.sept. kl 10-17
