Flýtilyklar
Stoð
Stoðvinir Minjasafnsins á Akureyri (Stoð) er félagsskapur vina safnsins. Félagið var stofnað 4. september 2002 á 40 ára afmæli safnsins, að frumkvæði Guðrúnar M. Kristinsdóttur safnstjóra og Haraldar Sigurðssonar, fv. bankafulltrúa.
Meginhlutverk Stoðar er að aðstoða Minjasafnið við hvers konar atburði á vegum safnsins og stuðla að velgengni þess. Félagið hefur aðstoðað við opnun sýninga, tekið þátt í viðburðum Minjasafnsins og staðið fyrir eigin viðburðum. Minjasafnið og Stoð hafa unnið saman að hátíðahöldum á safnasvæðinu á sumardaginn fyrsta. Stoðvinir hafa helgað sér fyrsta vetrardag og boðið upp á vandaðar dagskrár um áhugaverð efni enda hefur aðsókn verið mjög mikil.
Dagskrá um Arthur Gook 26. febrúar 2005.
Orgelið er komið! Dagskrá í tilefni 130 ár frá vígslu fyrsta kirkjuorgels í Eyjafirði. 22.október 2005. Dagskrá um Matthías Jochumsson. 21. október 2006.
Kjarnakonur úr Innbænum er yfirskrift dagskrár sem Stoðvinir Minjasafnsins á Akureyri stóðu fyrir fyrsta vetrardag 2007 í Amtsbókasafninu á Akureyri. Flutt voru stutt erindi um merkiskonurnar Elísabetu Geirmundsdóttur (1915-1959), listakonuna í Fjörunni og Ragnheiði O. Björnsson (1896-1987), kaupkonu.
Frá og með fyrsta vetrardegi 2008 hafa Stoðvinir verið með ýmsar stöðvar í tengslum við þær sýningar sem eru á safninu hverju sinni. Haustið 2008 var dagskrá tengd sýningunni Hvað er í matinn? og 2009 sýningunni Allir krakkar, allir krakkar.
Félagið heldur fundi annan laugardag annars hvers mánaðar á tímabilinu september fram í maí.
Félagið er öllum opið. Áhugasamir geta haft samband við Jökul Guðmundsson jgx@simnet.is eða í síma 462-5835. Einnig er hægt að hafa samband við Minjasafnið á Akureyri akmus@akmus.is.
Myndir frá starfi félagsins
Ársskýrslur

Opnunartími
Minjasafnið á Akureyri
er opið alla daga frá 1.júní - 15.sept kl 10-17
Skrifstofa safnsins er opin virka daga frá kl. 8-16.
Gamli bærinn Laufás er opinn frá 30. maí daglega kl 9-18 til 12. september.
Nonnahús: opið alla daga frá 1. júní -1.sept. kl 10-17
